06/05/2025

Verkís tekur virkan þátt í málþingi um snjóflóð og samfélög

Ofanflóð 2025

Dagana 5.–6. maí fer fram málþingið Ofanflóð 2025 – Snjóflóð og samfélög á Ísafirði, þar sem sjónum er beint að áhrifum snjóflóða á samfélög og þróun varna undanfarna áratugi. Málþingið er haldið í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá mannskæðum snjóflóðum í Súðavík og á Flateyri árið 1995. Verkís á marga þætti í undirbúningi og dagskrá málþingsins og tekur virkan þátt í viðburðinum.

Verkfræðingarnir Gísli Steinn Pétursson, Gunnar Páll Eydal og Jóhann Birkir Helgason, útibússtjóri Verkís á Ísafirði, mæta á málþingið fyrir hönd Verkís. Gísli Steinn flytur þar erindi sem nefnist „Uppbygging varna og virkni þeirra: Þil, vegskálar, garðar og keilu“, þar sem hann fjallar um mismunandi gerðir varnarmannvirkja við vegi og mikilvægi þeirra fyrir rekstraröryggi í vetrarumferð. Þá mun hann jafnframt kynna varnargarða ofan við Holtahverfi á Ísafirði í vettvangsferð í samstarfi við Hörpu Grímsdóttur hjá Veðurstofunni.

Verkís hefur einnig komið að hönnun og þróun nýrrar varnarvefsjár fyrir Ofanflóðasjóð sem verður frumsýnd á málþinginu. Vefsjáin, sem unnin hefur verið af Áka, Signýju, Hannah og fleiri sérfræðingum hjá Verkís, gefur góða yfirsýn yfir snjóflóðavarnir víða um land. Hana má nálgast hér, en unnið er að því að birta hana á einfaldari slóð á næstu dögum.

Að auki hafa starfsmenn í straumfræði- og landlíkan hópi Verkís í samstarfi við Veðurstofuna útbúið veggspjald um tilraunaverkefni með snjósöfnunargrindur á Eyrarfjalli, ofan Flateyrar.

Verkís kemur að ofanflóða málum á fjölbreyttan hátt – auk hönnunar á varnarmannvirkjum vinnur fyrirtækið m.a. að skipulagsgerð, umhverfismati og eftirliti framkvæmda sem snúa að ofanflóðum. Þessi víðtæka þekking og reynsla gerir Verkís að lykilaðila í þróun og ráðgjöf á sviði ofanflóðavarna.

Málþingið er opið almenningi í gegnum streymi og má fylgjast með því í beinni á vef Stjórnarráðsins:
👉 https://vimeo.com/event/5105377/embed/e842756d60/interaction

Dagskrá málþingsins má nálgast á www.ofanflod2025.is

 

Heimsmarkmið

Ofanflóð 2025