29/03/2021

Verkís tók þátt í ársfundi Grænvangs

Carine-arsfundur-Graenvangs
Carine á ársfundi Grænvangs

Á ársfundi Grænvangs 2021 var fjallað um grunninn sem íslensk stjórnvöld, íslenskt atvinnulíf og Grænvangur hafa lagt að lofts­lagsvænni framtíð og mikilvægi þess að halda áfram á sömu braut til að skapa sjálfbæra framtíð með góðri samvinnu.

Íslandsstofa og Græn­vangur vinna saman að því að kynna Ísland sem leið­andi land á sviði sjálf­bærni í öfl­ugu sam­starfi við íslensku sendi­ráðin og íslensk fyr­ir­tæki.

Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftlagsmál og grænar lausnir og sinnir kynningarstarfi á framlagi Íslands til loftlagsmála á erlendri grundu. Auk þess tekur Grænvangur virkan þátt í að tengja íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld saman til að ná sameiginlegu markmiði um kolefnishlutleysi 2040.

Á ársfundinum sögðu íslenskar verkfræðistofur frá verkefnum sem þær hafa komið að á heimsvísu. Verkís sagði frá mikilvægu jarðhitaverkefni í Afríku sem hefur bein áhrif á sjálfbæra þróun á heimsvísu.

Carine Chatenay, byggingarverkfræðingur og viðskiptastjóri á Orkusviði Verkís, flutti erindi fyrir hönd Verkís. Það bar yfirskriftina Um mikilvægi sameiginlegs markaðsstarfs: Örsaga um Tulu Moye í Eþíópíu.

Grænvangur  hefur umsjón með gerð Lofts­lags­áætlanar atvinnu­lífs­ins þar sem íslenskt atvinnu­líf setur fram heild­stæða yfir­sýn yfir markmið hverrar atvinnu­greinar og hvernig megi auð­velda atvinnu­líf­inu að ná mark­miði um kol­efn­is­hlut­leysi.

Carine-arsfundur-Graenvangs
Carine á ársfundi Grænvangs