Viðburður – Kynntu þér Evrópuverkefnin VERGE og GAMMA

Kynntu þér Evrópuverkefnin VERGE og GAMMA – Áhersla á sjálfbæra framleiðslu á ammoníaki til notkunar sem eldsneyti fyrir skip!
Dagsetning: 18. júní 2025 frá kl. 8:30-11:00
Staðsetning: Fenjamýri, Gróska, Háskóli Íslands
Komdu og taktu þátt í spennandi viðburði þar sem kynnt verða tvö nýstárleg verkefni styrkt af Horizon Europe sem skapa vonandi nýjar leiðir til sjálfbærrar orku- og umhverfismótunar.
Viðburðurinn samanstendur af áhugaverðum kynningum, umræðum í pallborði og spurningum frá áheyrendum.

Egill Skúlason, prófessor í efnaverkfræði við Háskóla Íslands, kynnir verkefnið VERGE (Versatile and direct e-fuel and fertiliser generation from renewable electricity), sem er leitt af Háskóla Íslands. Verkefnið snýst um framleiðslu á ammoníaki úr endurnýjanlegri orku sem hægt er að nota sem rafeldsneyti eða til framleiðslu á nituráburði– lausn sem getur skipt sköpum fyrir framtíð jarðar.

Kjartan Due Nielsen, nýsköpunarstjóri hjá Verkís mun kynna verkefnið GAMMA (Green ammonia and biomethanol fuel maritime vessels), sem er leitt af Verkís verkfræðistofu, sem snýr að þróun umhverfisvænna lausna sem nýta grænt ammoníak og lífmetanól til skipaflutninga, með það markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hlýnun jarðar.



Sævar Helgi Bragason stýrir viðburðinum og leiðir pallborðsumræður með þeim Kjartani Due Nielsen, Helgu Dögg Flosadóttur, framkvæmdarstjóri Atmonia ehf. og Spyros Kouvelis, fulltrúa frá samstarfi Evrópusambandsins og Gulf-ráðinu (EU-GCC, European Union – Gulf Cooperation Council) um græna umbreytingu.
Þetta er frábært tækifæri til að kynnast nýjustu þróun í sjálfbærri framleiðslu og notkun á ammoníaki, hlusta á framsögu og taka þátt í umræðum.
Þátttaka er ókeypis og öll velkomin. Til þess að auðvelda okkur að áætla fjölda biðjum við ykkur um að skrá komu ykkar hér: https://forms.office.com/e/B3wAGeWELM
Viðburðurinn verður haldinn á ensku!