Vinnu við gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi miðar vel
Verkinu miðar vel áfram og er steypuvinnan langt komin, búið er að setja upp límtré og klæðninguna, sem eru krosslímdar timburplötur. Verkís annast framkvæmdaeftirlit.
Fjallað var um nýju stöðina í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Rætt var við Bjarna Gný Hjarðar, yfirverkfræðing hjá Sorpu sem sagði stöðina vera algera byltingu og ánægjulegt skref. „Úrgangur sem er núna í gráu tunnunni má kalla restarafgang. Innihaldið í gráu tunnunni á að fara í þessa stöð og í vinnsluferli sem flokkar það niður í viðeigandi strauma í vélum,“ sagði Bjarni.
Það sem er lífrænt, eins og matarleifarnar og jafnvel bleyjurnar, fer inn í gas- og jarðgerðarstöðina. Út úr henni kemur metan, til dæmis á strætisvagna eða einkabílinn, og molta eða jarðvegsbætir til að græða upp landið. Markmiðið er að breyta því plasti sem verður afgangs í dísilolíu og þannig verður allt í gráu tunnunni endurunnið.
Fyrsta skóflustungan var tekin í ágúst á síðasta ári. Gas- og jarðgerðarstöðin mun taka til vinnslu allt að 36.000 tonnum af heimilisúrgangi á ári. Gólfflötur byggingar er samtals áætlaður um 12.000m2. Stöðin verður reist á svæði Sorpu í Álfsnesi.
Frétt Verkís: Gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi
Hér er fjallað nánar um verkefnið.
