Persónuvernd
Upplýsingar um persónuvernd
Yfirlýsing um persónuvernd
Verkís er umhugað um vernd persónuupplýsinga og almenn
persónuverndarsjónarmið og leggur sig fram um að veita hagaðilum sínum
upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga hjá Verkís. Lögð er áhersla á að vinna
með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og kostur er.
Hjá Verkís starfar persónuupplýsingateymi sem er skipað
lögfræðingi, kerfisstjóra og mannauðsstjóra.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða
persónugreinanlegar upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins
einstaklings. Með persónuupplýsingum er átt við auðkenni eins og nafn og
kennitölu, staðsetningargögn og netauðkenni.
Lög um persónuvernd gera strangari kröfur um meðferð
viðkvæmra persónuupplýsinga. Þannig flokkast meðal annars kynþáttur,
þjóðernislegur uppruni, stjórnmálaskoðanir og trúarbrögð til viðkvæmra
upplýsinga. Það er stefna Verkís að safna ekki viðkvæmum upplýsingum.
Í ákveðnum tilvikum eru persónuupplýsingar gerðar ópersónugreinanlegar
til að halda yfirlit yfir tölfræðilegar upplýsingar í tengslum við starfsemi
fyrirtækisins. Slík gögn teljast þá ekki lengur vera persónuupplýsingar.
Tilgangur með öflun persónuupplýsinga
Almennt er tilgangur með öflun persónuupplýsinga sá að
efna samninga sem Verkís hefur gert, s.s. verksamninga, þjónustusamninga eða
ráðningarsamninga, greiða fyrir samskiptum og veita betri þjónustu.
Hagaðilar geta verið viðskiptavinir, tengiliðir viðskiptavina,
umsækjendur, birgjar, starfsmenn Verkís og aðrir einstaklingar sem setja sig í
samband við fyrirtækið.
Verkís aflar og skráir persónuupplýsingar um hagaðila sem
nauðsynlegar eru fyrir starfsemina. Slík öflun upplýsinga er almennt byggð á
samþykki, samningi eða lagaskyldu sem hvílir á Verkís, nauðsyn vinnslu til að
vernda hagsmuni starfsmanns eða þegar lögmætir hagsmunir Verkís eða þriðja
manns krefjast þess. Verkís aflar einungis upplýsinga að því marki sem
nauðsynlegt þykir hverju sinni miðað við tilgang vinnslunnar.
Nöfn og netföng tengiliða eru varðveitt til að halda um
samskiptasögu og tryggja rekjanleika eftir því sem við á.
Í ákveðnum tilvikum eru persónuupplýsingar varðveittar í
markaðslegum tilgangi svo hægt sé að miðla upplýsingum til hagaðila.
Verkís styðst við notkun dróna í sumum verkefnum sínum og
við gerð markaðstengds efnis.
Á vefsíðu Verkís eru notaðar kökur (e. cookies). Kökur
eru litlar textaskrár sem notaðar eru til að greina heimsóknir á vefsíðu
fyrirtækisins og eru einungis nýttar til að halda um tölfræðilegar upplýsingar
og bæta þjónustu við notandann.
Á vefsíðu Verkís ásamt undirsíðum er ákveðnum talnagögnum
safnað með svo kölluðu Google Analytics. Gögnum sem safnað er á vefsíðunni eru
einungis ætlaðar til notkunar fyrir markaðssvið Verkís og ekki til dreifingar.
Upplýsingar sem Verkís aflar eru ekki nýttar til að gera
persónusnið einstaklings og er ekki dreift til þriðja aðila.
Upplýsingar sem Verkís aflar
Það fer eftir eðli verkefna og samningssambandi hverju
sinni hverra upplýsinga er þörf. Þannig eru nöfn, netföng og starfsheiti dæmi
um upplýsingar sem aflað er um tengiliði lögaðila.
Almennt eru slíkar persónuupplýsingar fengnar beint frá viðskiptavininum
sjálfum.
Starfsumsóknir
Farið er með starfsumsóknir sem trúnaðarmál og hámarks öryggi
er tryggt.
Starfsumsóknir eru geymdar í 12 mánuði. Vinnsla slíkra
upplýsinga er byggð á samþykki umsækjanda og getur umsækjandi afturkallað
samþykki sitt með því að eyða umsókn inn á ráðningavef Verkís.
Upplýsingar sem
aflað er með dróna
Verkís vistar og greinir upplýsingar sem safnað er með
drónum og öðrum myndatökubúnaði s.s. í tengslum við íbúðarhúsnæði og/eða á
athafnasvæðum eða í markaðstengdum tilgangi. Gögn sem aflað er með drónum og
öðrum myndavélabúnaði eru vistuð samkvæmt verklagsreglum sem gilda um vistun
gagna hjá Verkís.
Tilgangur slíkrar gagnaöflunar er ekki að safna
persónugreinanlegum upplýsingum þó að í vissum tilvikum geti slíkar upplýsingar
ratað inn í gögnin. Við notkun slíkra gagna eru myndir af einstaklingum,
bílnúmerum og þ.u.l. gerð ópersónugreinanleg þannig að ekki er lengur um
persónugreinanlegar upplýsingar að ræða sem falla undir lög um persónuvernd.
Í tilvikum þar sem umfang gagna er það mikið að ómögulegt er að ópersónugera allar myndir, bílnúmer og annað sem gæti fallið undir lög um persónuvernd, er tryggt að slíkar upplýsingar séu einungis aðgengilegar þeim sem starfa að viðkomandi verkefni og hámarks öryggi er tryggt. Gögn sem notuð eru í skýrslum og öðru útgefnu efni eru ætíð gerð ópersónugreinanleg.
Upplýsingaöryggi og flutningur persónuupplýsinga
Verkís leggur sig fram um að nýta viðurkenndar aðferðir
við að vernda persónuupplýsingar. Persónuvernd er innbyggð í hugbúnað og
upplýsingakerfi og hámarksáhersla á persónuvernd er sjálfgefin.
Persónuupplýsingar sem Verkís hefur aflað og býr yfir eru
aðeins nýttar í viðskiptalegum tilgangi sem samræmist meginstarfsemi
fyrirtækisins.
Persónuupplýsingar kunna að vera afhentar þriðja aðila að
því marki sem heimilað eða nauðsynlegt er á grundvelli viðeigandi samninga,
laga eða reglna. Í slíkum tilvikum tryggir Verkís að farið sé með upplýsingar í
samræmi við lög og fyllsta trúnaðar sé gætt.
Geymslutími persónuupplýsinga
Fyrirhugaður geymslutími persónuupplýsinga getur verið
misjafn og fer eftir eðli þeirra og tengslum við starfsemi fyrirtækisins.
Meginreglan er þó að geyma upplýsingar ekki lengur en þurfa þykir nema lögmæt
ástæða liggi til grundvallar lengri geymslutíma.
Viðbrögð við aðgangsbeiðnum
Komi fram beiðni um aðgang að eigin persónuupplýsingum,
leiðréttingu eða eyðingu mun kerfisstjóri í samvinnu við persónuupplýsingateymi
gera viðeigandi ráðstafanir til að láta viðkomandi upplýsingar í té. Slíkar
upplýsingar eru veittar skriflega, munnlega eða á rafrænu formi, eftir því sem
við á. Sé beiðni hafnað er leitast við að útskýra ástæður þess.
Viðbrögð við öryggisbroti
Verði vart við öryggisbrot mun kerfisstjóri í samstarfi
við persónuupplýsingateymi og framkvæmdastjóra grípa til viðeigandi ráðstafana
í samræmi við persónuverndarlög og leiðbeiningar frá Persónuvernd.
Lagalegur fyrirvari
Verkís leitast við að hafa upplýsingar sem birtar eru á
vefsíðu fyrirtækisins (www.verkis.is) áreiðanlegar og réttar. Ekki er þó hægt
að ábyrgjast slíkt í öllum tilvikum og á það sama við um áreiðanleika efnis á
þeim vefjum sem vísað er í með tenglum. Upplýsingum á vefnum kann að vera
breytt eða eytt hvenær sem er án sérstaks fyrirvara.
Verkís ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem
rekja má til notkunar á vef þessum eða efni því sem birt hefur verið á vef
fyrirtækisins.
Ábendingu um upplýsingar sem kunna að vera rangar má
senda í tölvupósti á verkis[hjá]verkis.is.
Höfundarréttur
Verkís áskilur sér höfundarrétt yfir því efni sem birt er
á vefsíðu fyrirtækisins. Afritun, dreifing og endurbirting er heimil enda sé
heimilda getið.
Endurskoðun
Upplýsingar þessar kunna að taka breytingum í samræmi við
lög, reglur og starfsemi fyrirtækisins.