Verkefni

Fjölnota íþróttahús í Suður-Mjódd

Í íþróttahúsinu verður gervigrasvöllur sem uppfyllir kröfur KSÍ til 7 til 8 manna bolta og aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta í norðurenda hússins.

Nánar um verkefnið

Húsið verður stálgrindarhús klætt með samlokueiningum með steinullareinangrun og steyptum spyrnuveggjum á austanverðri langhlið þess. Hliðarbyggingin verður upphituð með ofnum eða gólfhita. Neðri hæð mun rúma ýmsa aðstöðu en efri hæð hliðarbyggingar er að mestu opið rými fyrir utan einn afmarkaðan sal. Auk stiga milli hæða gengur lyfta milli hæða hliðarbyggingar.

Yrsa Sigurðardóttir, byggingarverkfræðingur hjá Verkís, er formaður byggingarnefndar um svæði ÍR. Fyrsta verk byggingarnefndar var að koma af stað vinnu við fjölnota íþróttahús sem áætlað er að verði fullklárað og rekstrarhæft í lok árs 2019. Ítarleg kostnaðaráætlun var gerð samhliða þeirri vinnu. Byggingarnefnd tók í framhaldinu ákvörðun um að bjóða verkið út í alútboði og var Verkís fengið til þess að útbúa alútboðsgögnin. Verkís verður ráðgjafi verkkaupa á framkvæmdartíma og sér um forhönnun á húsinu ásamt Arkís arkitektum.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Suður-Mjódd

Stærð:

4.326 fermetrar, 1.260 fermetrar

Verktími:

2017-

 

Heimsmarkmið