Verkefni

Gas- og jarðgerðarstöðin

Gas- og jarðgerðarstöðin, GAJA, er ætluð til endurnýtingar lífræns heimilisúrgangs af höfuðborgarsvæðinu.

Stöðin mun taka til vinnslu allt að 36.000 tonnum af heimilisúrgangi á ári.

Nánar um verkefnið

Miðað við áætlanir Sorpu verður hægt að tvöfalda afkastagetu stöðvarinnar ef þörf krefur. Gert er ráð fyrir að yfir 95% heimilisúrgangs sem berst til móttöku- og flokkunarstöðvar Sorpu í Gufunesi verði endurnýttur, með einum eða öðrum hætti þegar stöðin verður fullbúin.

Stöðin samanstendur af móttökuaðstöðu fyrir úrgang, vinnslusal og tíu þroskunarklefum fyrir lífrænan úrgang, auk geyma til hauggasgerðar. 

Tæknilausnir koma frá Aikan/Solum AS í Danmörku. Arkitektar við þróun verkefnis voru Batteríið Arkitektar og Mannvit hefur haldið utan um vinnu við útboð. Samið var við Ístak um framkvæmdir, eftir alútboð. 

Verkís annaðist eftirlit með framkvæmdum en í því fólst eftirlit með jarðvinnu- og byggingaframkvæmdum, eftirlit með uppsetningu á gasgerðartönkum og vélbúnaði, eftirlit með uppsetningu á raf- og stjórnbúnaði og eftirlit með öryggis- og umhverfismálum á framkvæmdatíma. 

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Álfsnes, Reykjavík

Stærð:

36.000 tonn af heimilisúrgangi, framleiðsla 3 milljónir fernanómetrar af metangasi og 10-12.000 tonn af jarðvegsbæti, gólfflötur 12.000 fermetrar

Verktími:

2018 – 2020

 

Heimsmarkmið