Verkefni

Gönguskarðsárvirkjun

Gönguskarðsá var virkjuð á árunum 1947 til 1949.

Gönguskarðsá er dragá sem rennur í Skagafjörð rétt norðan Sauðárkróks.

Nánar um verkefnið

Meðalrennsli er 3 til 5 rúmmetrar á sekúndu og vatnasvið eru um 167 ferkílómetrar. Vorið 2007 gaf aðveitupípa virkjunarinnar sig og varð mikið tjón þegar aur og vatn flæddi inn í hús. Framkvæmdir við endurbyggingu Gönguskarðsárvirkjunar hófust í júlí 2015. 

Verkís annaðist alla hönnun mannvirkja og búnaðar og eftirlit með framkvæmdum. Verkið fólst í heildarþjónustu við Íslandsvirkjun eiganda Gönguskarðsárvirkjunar. Hægt er að reka virkjunina á einangruðu neti sem þýðir aukið raforkuöryggi íbúa á Sauðárkróki. 

Verkís vann deiliskipulag og matskyldufyrirspurn vegna umhverfismála, sá um samskipti við skipulagsfulltrúa og Skipulagsstofnun og vann kostnaðar- og verkáætlun. Verkís gerði verklýsingu fyrir vélbúnað, rafbúnað og þrýstipípu og aðstoðaði við samningagerð við verktaka. Verkís gerði aðalteikningar fyrir stöðvarhús og jöfnunarþró ásamt því að hanna lokubúnað í inntaki, pípuleið, jöfnunarþró og stöðvarhúsi. Verkís vann mat á stíflu og tillögur að lagfæringum og sá um mælingar, eftirlit og aðstoð á framkvæmdartíma.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Sauðárkrókur

Stærð:

1.650 kílóvött

Verktími:

2015-2016

 

Heimsmarkmið