Verkefni

Sisimiut vatnsaflsvirkjunin

Sisimiut vatnsaflsvirkjunin er staðsett á Vestur-Grænlandi um 100 km norður af heimskautsbaugnum.

Virkjað rennsli er 10,4 rúmmetrar á sekúndu og fallhæð 80 m.

Nánar um verkefnið

Sisimiut vatnsaflsvirkjunin er staðsett á Vestur-Grænlandi um 100 km norður af heimskautsbaugnum. Sisimiut vatnsaflsverkefnið er annað vatnsaflsverkefni Verkís á Grænlandi, í kjölfar framkvæmda við Qorlortosuaq vatnsaflsverkefnið.

Verkefnið virkjar vatn náttúrulega stöðuvatnsins Tasersuaq með niðurdrætti í vatnshæð um 80 m.  Vatn er leitt í gegnum inntaksmannvirki, og síðan veitt í gegnum jafnhallandi aðrennslisgöng niður í tvær 7,5 MW Francis vélar í neðanjarðar stöðvarhúsi, staðsett við sjávarmál um 125 m inni í fjallinu.  Frá túrbínunum rennur vatnið út í frárennslisgöng sem opnast út í frárennslisskurð, sem liggur til sjávar.

Við munna aðkomuganga stöðvarhússins er 365 m² þjónustuhús, sem hýsir þjónustuaðstöðu og geymslur fyrir virkjunina og starfsfólk hennar.  Auk þess er í byggingunni fullbúið gistirými fyrir 12 manns.

Framleitt rafmagn virkjunarinnar mun sjá Sisimiut (um 6.500 íbúa) fyrir rafmagni, og koma  í staðinn fyrir núverandi dísilrafala, og gera bæinn þannig óháðan innfluttu eldsneyti.

Sérfræðingar Verkís unnu staðarmat og hagkvæmniathugun, EPC tilboðsgerð, útboðshönnun fyrir undirverktaka, deilihönnun allra byggingahluta virkjunarinnar, deilihönnun og/yfirferð hönnunar raf- og vélbúnaðar, sem og úttektir og gangsetningu virkjunarinnar.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Grænland  

Stærð:

15 MW

Verktími:

2006 – 2009 

 

Heimsmarkmið