25/04/2023

Edda vígð við hátíðlega athöfn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra afhjúpaði nafn hússins, Edda.

Edda, hús íslenskra fræða, var vígt sl. miðvikudag við hátíðlega athöfn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra afhjúpaði nafnið og afhenti Árnastofnun og Háskóla Íslands lyklana að Eddu.

Verkís sá um aðstoð á framkvæmdatíma og hafði umsjón með allri verkfræðihönnun og sá um burðarþolshönnun og loftræsi- og lagnahönnun.

Húsið er ætlað sem miðstöð rannsókna og kennslu í íslenskum fræðum: tungu, bókmenntum og sögu. Þar verða jafnframt varðveitt frumgögn um íslenska menningu, þ.e. handrit, skjöl, orða- og nafnfræðisöfn og þjóðfræðasöfn.

Í byggingunni eru ýmis sérhönnuð rými, svo sem fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesaðstaða fyrir nemendur, fyrirlestra- og kennslusalir og bókasafn með lesaðstöðu.

Ljósmynd/Stjórnarráðið. 

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra afhjúpaði nafn hússins, Edda.