14/10/2020

Fullnaðarhönnun á nýrri brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi lokið

Heildarlengd á vegkafla verður um einn kílómetri. Brúin verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum og verður heildarlengd hennar 163 metrar. Nýja brúin verður reist á sama stað og sú gamla, sem verður rifin. Vinnuflokkur Vegagerðarinnar mun setja upp bráðabrigðabrú.

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í smíði brúarinnar og verða tilboð opnuð þriðjudaginn 27. október nk. Áætlað er að verkið verði klárað á haustdögum 2021.

Gamla brúin á Jökulsá austan Skóga er eina einbreiða brúin á leiðinni frá Reykjavík og austur að Kirkjubæjarklaustri. Hún var byggð árið 1967. Við brúna hafa oft myndast langar bílaraðir þegar umferð er mest á sumrin.

Eitt af skilgreindum markmiðum samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar er að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegum þar sem fleiri en 200 ökutæki fara um á sólarhring að meðaltali (ÁDU).

Frétt Verkís: Verkís hannar nýja brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi
Verkefni Verkís: Brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi

Brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi - hönnun
bru-yfir-jokulsa-a-solheimasandi-2