28/10/2021

Lagarlíf 2021

Lagarlíf logo

Verkís tekur þátt í ráðstefnunni Lagarlíf sem stendur yfir dagana 28. – 29. október á Grand hótel Reykjavík.

Verkís er með tvo fyrirlesarar á ráðstefnunni, sem halda fyrirlestur á morgun, föstudag, ásamt því að sérfræðingar okkar standa vaktina í Verkís básnum.

Jón Pálmason
Jón Pálmason, hópstjóri stjórnbúnaðarhóps hjá Verkís, mun flytja erindið Öruggar aðaldreifingar og varavélar í fiskeldi.

 

Dóra Hjálmarsdóttir
Dóra Hjálmarsdóttir, ÖHU fulltrúi og ráðgjafi hjá Verkís, mun flytja erindið Öryggismenning og áhættugreining í landeldi. 

Það er félagið Strandbúnaður sem stendur að ráðstefnunni. Tilgangur félagsins er að stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um strandbúnað og styðja þannig við menntun, rannsóknir, þróun og stefnumótun greinarinnar. Strandbúnaður er samheiti yfir atvinnugreinar sem tengjast nýtingu land- og/eða sjávargæða í og við strandlengju landsins, hvort sem um ræktun eða eldi er að ræða.

Á ráðstefnunni er fjallað um mikilvæg viðfangsefni á sviði fiskeldis, skeldýra- og þörungaræktar og vonast er til að hún verði uppspretta hugmynda og hvatning til góðra verka.

Vefsíða ráðstefnunnar: Dagskrá

Bæklingur Verkís: Fiskeldi

Heimsmarkmið

Lagarlíf logo