08/03/2023

Morgunverðarfundur – Jarðvegsmengun

Morgunverðarfundur um jarðvegsmengun

Fimmtudaginn 16. mars nk. stendur Verkís fyrir morgunverðarfundi sem ber yfirskriftina Jarðvegsmengun – áskoranir, lausnir og nýting auðlindar. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Verkís í Ofanleiti 2 en verður einnig aðgengilegur í streymi.

Jarðvegur er mikilvæg auðlind en þar sem hún er takmörkuð þurfum við að vera meðvituð um heilbrigði hennar og hvernig við meðhöndlum hana. Vitundarvakning er að verða um mikilvægi þess að framkvæmdar séu mengunarrannsóknir í jarðvegi tímanlega.

Regluverkið og leiðbeiningar varðandi aðferðir til mengunarrannsókna hafa verið uppfærðar á síðustu árum.

Ýmsar lausnir til hreinsunar á menguðum jarðvegi eru til staðar og með því að hreinsa mengaðan jarðveg er hægt að nýta þessa mikilvægu auðlind áfram.

Heilsa fólks og umhverfisins er hvatningin fyrir því að vel sé staðið að þessum málum.

Dagskrá:

Kl. 8.30 – 9.00 – Húsið opnar – Ofanleiti 2 / morgunhressing

Kl. 9.00 – 9.10 – Gestir boðnir velkomnir

Kl. 9.10 – 9.15 – Ávarp í upphafi fundar – Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins

Kl. 9.15 – 9.30 – Leiðbeiningar, kortasjá og ábendingavefur – Kristín Kröyer, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun

Kl. 9.30 – 9.45 – Mengunarrannsóknir ráðgjafans – verkferlar, áskoranir og lausnir – Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, doktor í umhverfis- og jarðefnafræði hjá Verkís

Kl. 9.45 – 10.00 – Þetta er bara smá olía, gerir engum mein – Guðjón Ingi Eggertsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur

Kl. 10.00 – 10.15 – Leifar fortíðarinnar, áskoranir framtíðarinnar – Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir, sérfræðingur hjá Isavia

Kl. 10.15 – 10.30 – Umræður / spurningar

Fundarstjórn: Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Gestir eru hvattir til að nýta sér vistvænar samgöngur.

Skráning á fundinn fer fram hérhttps://bit.ly/3F7Pzop

Viðburðurinn á Facebook. Jarðvegsmengun | Facebook

Hér er hægt að fylgjast með fundinum í gegnum Teams: https://bit.ly/3kWtUc4

Heimsmarkmið

Morgunverðarfundur um jarðvegsmengun