12/05/2022

Verkís 90 ára – Afmælisblað

Hópmynd af starfsfólki Verkís maí 2022
hopmynd-af-starfsfolki-id-275805

Á þessu ári eru liðin 90 ár síðan Sigurður Thoroddsen stofnaði fyrstu verkfræðistofu á Íslandi og miðast aldur Verkís verkfræðistofu við þann atburð. Í dag kemur út átta blaðsíðna afmælisblað sem tileinkað er stórafmæli fyrirtækisins.

Það var á vormánuðum ársins 1932 sem Sigurður hóf rekstur eigin verkfræðistofu í Reykjavík og miðast afmælisdagurinn við daginn í dag, 12. maí.

Félagið Verkís var stofnað 21. nóvember 2008 en þá runnu saman fjögur fyrirtæki: VST-Rafteikning hf., Fjarhitun hf., Fjölhönnun ehf. og RT ehf. – Rafagnatækni. Áður höfðu VST – Rafteikning sameinast úr Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, sem var elsta verkfræðistofa landsins og Rafteikningu hf. Í apríl 2013 sameinuðust Verkís og Almenna verkfræðistofan undir nafni Verkís.

Allar stofurnar komu með verðmæta reynslu og þekkingu inn í Verkís. Sala verkfræðiþjónustu byggir oft á fyrri reynslu af svipuðum verkefnum og alltaf á því að bjóða fram öflugt starfsfólk. Mikill styrkur er í því að geta boðið fjölbreytta þjónustu.

Afmælisblað Verkís – sérblað Fréttablaðsins

Hópmynd af starfsfólki Verkís maí 2022
hopmynd-af-starfsfolki-id-275805