25/05/2022

Verkís leggur hönd á plóg í tilefni 90 ára afmælis

Styrkveiting Verkís 2022
Frá vinstri: Helgi Þór Helgason, Susanne Freuler, Eva Íris Eyjólfsdóttir og Halla Þorvaldsdóttir fyrir hönd Styrkleikanna/Krabbameinsfélagsins, Erna Magnúsdóttir fyrir hönd Ljóssins, Brynhildur Bolladóttir fyrir hönd Rauða krossins og Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís. 

Í morgun afhentu Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, Helgi Þór Helgason, formaður stjórnar Verkís og Susanne Freuler, varamaður stjórnar Verkís, styrki til Ljóssins, Rauða krossins og Krabbameinsfélagsins – Styrkleikanna. Stjórn fyrirtækisins ákvað að veita þremur málefnum veglegan styrk í tilefni af 90 ára afmæli þess í ár.

Styrkurinn til Rauða krossins er eyrnamerktur aðstoð við Úkraínu. Þann 24. febrúar sl. réðst rússneski herinn inn í Úkraínu og er talið að fleiri en 14 milljónir manns hafi þurft að flýja heimili sín. Tæplega helmingur þeirra er talinn hafa yfirgefið landið en aðrir á flótta í Úkraínu.

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt.

Styrkleikarnir eru hluti af alþjóðlega viðburðinum Relay for Life. Um er að ræða alþjóðlegan viðburð sem fer árlega fram á yfir 5.000 mismunandi stöðum í yfir 30 löndum um allan heim. Hátt í 10 milljónir taka þátt í viðburðinum á hverjum ári og er sá hópur sífellt að stækka. Um er að ræða sólarhringsviðburð sem er táknrænn fyrir að það fæst engin hvíld frá krabbameini.

Heimsmarkmið

Styrkveiting Verkís 2022
Frá vinstri: Helgi Þór Helgason, Susanne Freuler, Eva Íris Eyjólfsdóttir og Halla Þorvaldsdóttir fyrir hönd Styrkleikanna/Krabbameinsfélagsins, Erna Magnúsdóttir fyrir hönd Ljóssins, Brynhildur Bolladóttir fyrir hönd Rauða krossins og Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís.