Verkís með erindi á Vorfundi SATS

Verkís með erindi á Vorfundi SATS.
Vorfundur Samtaka tæknimanna sveitarfélaga (SATS) fer fram á Hótel Geysi dagana 8.–9. maí. Á fundinum er fjölbreytt dagskrá með áhugaverðum erindum sem snerta allt frá fjarkönnun og vegagerð yfir í gervigreind og nafngiftir innan sveitarfélaga.
Ragnar Ómarsson, byggingafræðingur og viðskiptastjóri vistvænna verkefna hjá Verkís, og Elín Vignisdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Verkís, eru með sameiginlegt erindi um nýja reglugerðarbreytingu sem tekur gildi í september. Þar verður gerð krafa um lífsferilsgreiningar (LCA – Life Cycle Assessment) fyrir öll ný mannvirki í umfangsflokkum 2 og 3 sem byggingarleyfi þarf fyrir.

Ragnar fjallar um tilurð breytinganna og hver áhrifin verða fyrir sveitarfélögin. Hann leggur áherslu á að breytingarnar séu liður í að auka sjálfbærni í byggingariðnaði og að mikilvægt sé að sveitarfélög séu undirbúin og með skýra stefnu til framtíðar. Elín fer yfir aðferðafræðina á bak við LCA og sýnir hvernig kortleggja má kolefnisspor mannvirkja í gegnum allan lífsferil þeirra – frá hönnun og byggingu til notkunar, viðhalds og niðurrifs. Hún kynnir einnig raunveruleg dæmi um hvernig lífsferilsgreiningar hafa þegar verið nýttar með árangri í verkefnum Verkís.

Erindi Verkís undirstrikar mikilvægi þess að innleiða nýjar sjálfbærnikröfur af festu og með aðgengilegum verkfærum. Fundargestir fá hagnýta innsýn í hvernig nálgast megi LCA-greiningar í samstarfi við sérfræðinga og hvaða atriði ber að hafa í huga til að uppfylla kröfur reglugerðarinnar.
Verkís þakkar SATS fyrir kærkomið tækifæri til að miðla þekkingu og lausnum sem styðja við sjálfbærni í skipulagi og mannvirkjagerð.
Verkís með erindi á Vorfundi SATS 2024