28/03/2023

Verkís stendur að námskeiði um brunavarnir 

Verkís stendur ásamt fleirum að námskeiði um brunavarnir 1. apríl nk.

Námskeið um brunavarnir á skógarsvæðum og í sumarbústaðalöndum verður haldið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi laugardaginn 1. apríl nk. Námskeiðið er opið öllum og hentar sérstaklega bændum, skógareigendum, sumarhúsaeigendum og öðrum sem eiga land þar sem eldur getur brunnið á og ógnað verðmætum. Námskeiðið er haldið af Verkís, Brunavörnum Árnessýslu, Garðyrkjuskóla FSU og Skógrækt ríkisins.

Meðal kennara á námskeiðinu er Dóra Hjálmarsdóttir, öryggisráðgjafi og verkfræðingur hjá Verkís.

Dóra Hjálmarsdóttir
Dóra Hjálmarsdóttir

Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða lög og reglugerðir gilda um brunavarnir á skógarsvæðum og í sumarbústaðalöndum. Kynntur verður vefurinn gróðureldar.is skipulag skóga og ræktaðra svæða með tilliti til brunavarna og varnarsvæði – hvers konar gróður er á slíkum svæðum. Fjallað verður um mikilvægi vega og slóða á ræktuðum svæðum og góðs aðgengis að vatni.

Er trjágróður miseldfimur? Hvað töpum við miklu kolefni ef hann brennur? Er hægt að tryggja tré/skóg? Sagt verður frá þeim búnaði og aðferðum sem nýtast við að ráða niðurlögum gróðurelda. Næsta slökkvilið, hvaða búnað hefur það til umráða? Eru öll slökkvilið eins útbúin? Hver eru fyrstu viðbrögð við gróðureldum, hvað þarf að vera til staðar í sumarhúsinu/á svæðinu? Skiptir máli hvernig gróður er næst mannvirkjum?

Námskeiðið verður haldið laugardaginn 1. apríl frá kl. 9-12 í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi. Verð er 12.600 kr. Skráning fer fram í gegnum netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is og er hægt að skrá sig til 28. mars nk. Hægt er að skrá sig og fylgjast með námskeiðinu í gegnum Teams.

Heimsmarkmið

Verkís stendur ásamt fleirum að námskeiði um brunavarnir 1. apríl nk.