Emilía Sól hjá Verkís fjallar um varnargarða við Svartsengi og Grindavík

Verkís leiðir hönnun og hermun til verndar mikilvægum innviðum
Emilía Sól Guðgeirsdóttir, umhverfisverkfræðingur hjá Verkís, birtir grein í nýjasta hefti Upp í vindinn, tímariti umhverfis- og byggingarverkfræðinema við Háskóla Íslands, þar sem hún fjallar um umfangsmikla uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga.

Greinin lýsir því hvernig Verkís hefur gegnt lykilhlutverki í mótun og hönnun varnargarða við Svartsengi og Grindavík í kjölfar eldsumbrota á svæðinu. Verkefnið hófst árið 2021 undir verkefnisstjórn Verkís, þegar Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra stofnaði starfshópinn Varnir mikilvægra innviða, þar sem einnig komu að sérfræðingar frá Eflu, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands.
Með samþykkt neyðarlaga í nóvember 2023 hófst hraðvirk uppbygging garða til að verja mikilvæga innviði, á borð við orkuverið í Svartsengi, Grindavíkurbæ, Bláa lónið, fjarskiptakerfi, vegi og lagnir.
Í greininni kemur fram að heildarlengd varnargarðanna nemur nú um 13,5 kílómetrum og rúmmál þeirra nálgast 2,5 milljónir rúmmetra, sem jafngildir rúmlega 100 Hallgrímskirkjum! Meðalhæð þeirra er um 7 metrar, en sums staðar hefur verið nauðsynlegt að hækka þá upp í 24 metra, sambærilegt við 7–8 hæða byggingar.
Hraunhermanir lykilatriði í hönnunarferlinu
Verkís hefur nýtt sér margþætta þekkingu í hönnun garðanna, m.a. reynslu úr eldgosinu í Fagradalsfjalli 2021 og tækni úr stífluhönnun. Þar að auki eru hraunflæðihermanir lykilþáttur í greiningu á mögulegum sviðsmyndum. Í þeim tilgangi nýtir Verkís forritið HEC-RAS, sem aðlagað hefur verið til að herma einfalt hraunrennsli með breytingum á eiginleikum vökvans.
Grein Emilíu er mikilvægt framlag til umræðu um náttúruvá og varnir við henni, og sýnir vel þá sérfræðiþekkingu sem Verkís býr yfir á sviði umhverfisverkfræði og hermun.
Tengdar fréttir:
Varnir mikilvægra innviða á Reykjanesi
Eldgosid veitir einstakt tækifæri til mælinga og prófana
Vilja hækka varnargarðana
Varnargarðar á suðurnesjum
Unnið að því að hemja hraunstraum
Þrívíddarskönnun með drónum