Framkvæmdir ganga vel við Vífilsbúð
Fjallað var um
framkvæmdirnar í Morgunblaðinu. Þar er rætt við Björn Hilmarsson, formann húsnefndar
skátafélagsins sem hefur jafnframt umsjón með framkvæmdunum við Grunnuvötn.
Björn segir að nú sé búið að steypa sökkla og fljótlega verður platan steypt. Í
vetur verði húsið, sem verður úr timbri, byggt úr staðnum á mestu. Eftir nokkra
yfirlegu var sú leiði metin heppilegri en að ráðast í innflutning.
Björn segir í
samtali við Morgunblaðið að húsið muni standa í um 130 metra hæð yfir
sjávarmáli og verði hugsanlega það hús á höfuðborgarsvæðinu sem standa muni
hæst. Aðkoma að svæðinu er eftir gömlum línuvegi frá Heiðmerkurvegi upp Vífilsstaðahlíð
og vinnur skátafélagið að endurbótum á honum í samvinnu við Landsnet sem á
vegin. Lögð hefur verið inn beiðni til Veitna um heimtaug að húsinu fyrir
rafmagn. Þá er unnið að fráveitu- og vatnsveitumálum fyrir skálann.
„Með tilkomu
útilífsmiðstöðvarinnar skapast betri möguleikar á að efla áhuga barna og unglinga
á starfsemi skátafélagsins og verður húsnæðið notað til að starfrækja fjölbreytta
uppeldisstarfssemi í anda skátahreyfingarinnar. Garðabær getur jafnframt notað húsnæðið
fyrir tómstunda- og fræðslustarfsemi á vegum leik- og grunnskóla bæjarins. Við undirskrift
samnings um framkvæmdir lýstu samningsaðilar yfir áhuga á að húsnæðið verði
nýtt sem áningarstaður í útivist almennings, t.d. í skipulögðum útivistarviðburðum
í Heiðmörk á vegum bæjarfélagsins og skátafélagsins,“ segir í umfjöllun
Morgunblaðsins.
Björn segir að
til lengri tíma sé draumur skáta að þarna verði tjaldstæði og hægt verður að
halda þar skátamót.
Verkefni: Vífilsbúð
Frétt Verkís: Verkís hannar útilífsmiðstöð í Heiðmörk
Um þjónustu Verkís á sviði brunahönnunar, burðarvirkja, lagna og rafkerfa.
