03/11/2022

Verkís leggur Landsbjörg lið með kaupum á Neyðarkallinum

Afhending Neyðarkallsins 2022

Verkís er stolt af því að hafa innan sinna raða starfsfólk sem vinnur óeigingjarnt starf í þágu björgunarsveita á Íslandi. Í dag selur starfsfólk Verkís, sem er í björgunarsveitum Landsbjargar, Neyðarkallinn innan fyrirtækisins. Samhliða sölunni kaupir Verkís, líkt og undanfarin ár, stóra Neyðarkallinn ásamt því að leggja málefninu lið með fjárframlagi.

Salan á Neyðarkallinum er ein stærsta fjáröflun Landsbjargar og í ár stendur salan yfir um allt land dagana 4. nóvember til og með 7. nóvember. Við hvetjum öll til að leggja sveitum Landsbjargar lið.

Á myndinni eru frá vinstri: Kári Steinar Karlsson, Auður Atladóttir, Egill Viðarsson framkvæmdastjóri Verkís, og Haukur Þór Haraldsson.

Neyðarkallar síðustu ára

Heimsmarkmið

Afhending Neyðarkallsins 2022