Við tökum stjórnina
Sé þess óskað af verkkaupa leggur fyrirtækið til byggingarstjóra og annast alla byggingastjórnun, samræmingu verktaka og verkefnisgát á verkstað. Framkvæmdaeftirliti er skipt í faglegt eftirlit, eftirlit með kostnaði og eftirlit með verkáætlun.
Meðal annarrar þjónustu sem fyrirtækið býður upp á á framkvæmdastað má líka nefna umsjón með öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum, gæðastjórnun og gæðaeftirlit. Í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisþættinum er lögð áhersla á öryggi allra starfsmanna sem að verkinu koma, skráningar og skýrslugerð tengda öryggismálum auk þess að verkið hafi sem minnst varanleg umhverfisáhrif í för með sér.
Verkís hefur annast bygginarstjórnun á ýmsum verkum um land allt.
Þjónusta
- Samningagerð og kostnaðareftirlit
- Eftirlit með framkvæmdaáætlun
- Breytingastjórnun
- Umsjón með öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum
- Gæðastjórnun og gæðaeftirlit
- Öryggi framkvæmda og reksturs
Verkefni
- Austurstræti 22 og Lækjargata 2
- Norðurál Grundartanga
- Sundlaug Reykjanesbæ
- Sundlaug Hornafirði
- Kárahnjúkavirkjun
- Sundlaug Álftanesi